Umslag ehf. - Lágmúli 5 - Reykjavík - Sími 533 5252 - Fax 533 5250 - umslag@umslag.is  
 
- Viðurkenningar


Umhverfisviðurkenning


Árið 2003 hlaut Umslag Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar en það var í sjöunda sinn sem slík viðurkenning var veitt. Í umsögn starfshóps vegna verðlaunanna segir m.a. að Umslag sýni mjög gott fordæmi í umhverfismálum og hafi náð þar verulegum árangri. Það sé öðrum fyrirtækjum í skyldum rekstri fyrirmynd og sé meðvitað um þau umhverfisvandamál sem fylgja rekstrinum og reyni að lágmarka þau.




Forvarnarverðlaun TM VARÐBERGIÐ


Tryggingamiðstöðin veitir árlega VARÐBERGIÐ verðlaun til viðskiptavina sem skara fram úr í forvarnarmálum. Góðar og markvissar forvarnir auka rekstraröryggi og lágmarka tjónatíðni.
Árið 2001 hlaut Umslag verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur í forvarnarmálum fyrirtækisins.

Verðlaunagripurinn var hannaður og unninn af listamanninum Gabríelu Friðriksdóttur.






EGIN (european graphic/media industry network)

Árið 2001 hlaut Umslag EGIN viðkenninguna fyrir bestu menntastefnu í hópi evrópskra prentfyrirtækja.









vefstjóri © copyright 2011 - Umslag ehf.