|
| |
Umslag ehf. - Lágmúli 5 - Reykjavík - Sími 533 5252 - Fax 533 5250 - umslag@umslag.is |
|
|
|
| - Pappír í sátt við náttúruna |
|
Leikskólar landsins fá 4 tonn af
pappír að gjöf
Fulltrúar Umslags, Odda og Póstsins,
afhentu fyrstu kassana af pappír á leikskólanum
Skógarborg þann 28. janúar síðastliðinn.
Pappírsgjöfin er aðeins sú fyrsta af fjölda
sambærilegra gjafa til allra leikskóla landsins sem
dreift verður á næstu tveimur mánuðum.
Gjafirnar eru liður í umhverfisverkefni sem beinir sjónum
að ábyrgð pappírsframleiðenda sem hafa
í meira en hálfa öld verið í fararbroddi
í stækkun evrópskra skóga. Á hverjum
degi eru ræktaðir upp skógar á svæði
sem samsvarar 4363 knattspyrnuvöllum.
Kominn er tími til að umhverfissinnað fólk
hætti að hafa samviskubit vegna pappírsnotkunar,
því pappír á Íslandi er í
sátt við umhverfið. Þetta eru skilaboðin
sem Íslandspóstur, Oddi og Umslag hafa forgöngu
um að koma á framfæri til almennings. Pappír
hefur setið undir ómaklegum árásum og flökkusögum
sem tími er kominn til að kveða í kútinn,
segja forsvarsmenn þessara fyrirtækja. Við getum
haft samviskubit vegna ýmislegs sem gert er á hlut
náttúrunnar, en pappírsnotkun er ekki þar
á meðal.
Í tilefni átaksins “Pappír í sátt”
munu fyrirtækin þrjú færa öllum leikskólum
landsins pappír að gjöf. Alls eru það
ríflega fjögur tonn af pappír sem verður
dreift um allt land í hendur leikskólabarna á
næstu mánuðum. Kemur hann örugglega í
góðar þarfir, ekki síst í ljósi
þess niðurskurðar sem víða hefur þurft
að grípa til. |
Nokkrar staðreyndir um pappír:
• Pappír ógnar ekki
regnskógunum. Þar hefur hins vegar verið gengið
of nærri skógunum í landbúnaði.
• Pappírinn okkar kemur frá evrópskum
framleiðendum sem eru í heimsforystu um góða
og sjálfbæra nýtingu skóglendis.
• Skóglendi í Evrópu er ræktað
upp á hverjum degi á svæði sem samsvarar
4363 knattspyrnuvöllum.
• 50% af þeim viðartrefjum sem eru í nýjum
pappír koma úr endurunnum pappír.
• Hin 50% koma úr nytjaskógum, sem fara stækkandi
með hverju ári, afgöngum frá byggingar- og
húsgagnatimburvinnslu og frá nauðsynlegri grisjun
á skóglendi.
|
|
|
|
|
vefstjóri copyright 2011 - Umslag ehf. |