Reynslan hefur sýnt að oft næst bestur árangur
og mest hagkvæmni þegar viðskiptavinir okkar leita
til okkar strax í upphafi verkefnis. Þannig má
fyrirbyggja óþarfa tafir, fyrirhöfn og kostnað.
Í grafískri vinnslu Umslags starfar fólk með
þekkingu og menntun á sviði grafískrar hönnunar
og margmiðlunar. Starfsfólk okkar hefur víðtæka
reynslu í hönnun prentverkefna og frágangi útsendinga
af ýmsu tagi. Við hönnun markpósts og persónutengds
útsendiefnis aðstoðar starfsfólk fyrirtækisins
viðskiptavini með faglegri ráðgjöf og ábendingum
um hugsanlegar leiðir í hönnun og vinnslu.